Ég er hættur! - í bili, að minnsta kosti. Ég á samt örugglega eftir að endurvekja blogginn, og þá hugsanlega undir nafni. Hver veit. Sé til.
Þangað til bendi ég ykkur á að lesa blogg bloggvina minna, sem finna má í vinstri dálknum. Margt skemmtilegt þar að finna.
Frá upphafi hafa óbeinir reykingamenn geta notið þess að anda að sér reyk annarra í góðra vina hópi á krám og veitingarstöðum. Vegna laganna sem tóku gildi nú um mánaðarmótin heyrir það nú sögunni til.
"Það er búið að taka af okkur ánægjuna við að fara út að skemmta okkur", segir Salvör Guðbjartsdóttir, talsmaður nýstofnaðra samtaka óbeinna reykingamanna. "Sjálf er ég einstæð tveggja barna móðir og hef einfaldlega ekki ráð á því að greiða fyrir mínar reykingar. Óbeinar reykingar eru eini kosturinn í stöðunni fyrir mig og nú er búið að taka hann frá mér. Það virðist enginn bera hagsmuni okkar fyrir brjósti."
Salvör vonast til að nýskipaður heilbrigðismálaráðherra gangi í málið. "Það virðist hafa gleymst að hugsa um okkur. Fyrir hvern beinan reykingamann eru fimm óbeinir reykingamenn. Það eru ansi mörg atkvæði, gleymum því ekki!"
Og Salvör bætir við: "Ég lít á þetta sem aukna skattheimtu. Það er augljóst að þetta kemur verst við okkur, sem minnst höfum á milli handanna." En hverju munu samtökin beita sér fyrir? "Við teljum að ríkið eigi að niðurgreiða reykingar í stað þess að skattleggja þær, enda eru reykingar í eðli sínu velferðarmál. Reykingar kunna hugsanlega að stytta lífið en þær gera það bara svo miklu skemmtilegra! Það er engin spurning að við höfum orðið fyrir töluverðri skerðingu á lífskjörum."
Varúð: Lesist eingöngu til skemmtunar!
Repúblikanar höfðu rétt fyrir sér, eftir allt saman. Clinton virðist hreinræktað illmenni! Sjáið bara myndbandið.
<object classid="clsid:D27CDB6E-AE6D-11cf-96B8-444553540000" codebase="http://download.macromedia.com/pub/shockwave/cabs/flash/swflash.cab#version=6,0,29,0" width="425" height="350"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/34-mz-wEHCs" /><param name="quality" value="high" /><param name="menu" value="false" /><param name="wmode" value="transparent" /><embed src="http://www.youtube.com/v/34-mz-wEHCs" wmode="transparent" quality="high" menu="false" pluginspage="http://www.macromedia.com/go/getflashplayer" type="application/x-shockwave-flash" width="425" height="350"></embed></object>
Sjónvarpsstöðin Fox þykir nokkuð höll undir íhaldssöm gildi í bandarískum stjórnmálum. Myndskeiðið sjálft er hinsvegar úr kvöldþætti Jay Leno á NBC.
Ég er einn þeirra sem ljáði Illuga Gunnarssyni stuðning minn í prófkjöri Sjálfstæðismanna. Illugi er maður að mínu skapi, fljótur að hugsa og rökviss en jafnframt með hjartað á réttum stað. Auðvitað þykir mér það miður að Illugi fái ekki enn betra tækifæri til að láta ljós sitt skína að þessu sinni en það er einfaldlega bara svo mikið af góðu fólki í flokknum. Illugi á að minnsta kosti framtíðina fyrir sér!
Mér er fúlasta alvara. Google er búið að bæta Face recognition við myndaleitina hjá sér. Þetta er ekki orðið opinbert, enda á tilraunastigi, en er samt sem áður opið öllum. Gerum tilraun. Venjuleg myndaleit að "London" skilar eftirfarandi niðurstöðum (á myndinni eru birtar íslenskar niðurstöður - ræðst af því hvernig Google er stillt hjá þér):
Bættu nú við leitarstrenginn eftirfarandi viðbót og ýttu á Return hnappinn: &imgtype=face
Niðurstöðurnar verða nú þessar (á myndinni eru birtar íslenskar niðurstöður - ræðst af því hvernig Google er stillt hjá þér):
Google er svo sannarlega magnað fyrirtæki. Njótið!
Það er nokkuð ljóst hvað ætlast var til að kosið væri, hér að neðan. Kosningarnar snerust um inngöngu Austurríkis í þýska ríkjasambandið og stuðning við flokk þjóðernisjafnaðarmanna, ári áður en seinni heimsstyrjöldin braust út.
Fyrir þá sem eru farnir að ryðga í menntaskólaþýskunni: "Ert þú samþykk/ur því að Austurríki hafi að nýju fengið inngöngu í þýska ríkjasambandið, sem tók gildi 13. mars 1938, og kýst þú flokk foringja okkar, Adolfs Hitler?". Stærri hringurinn er merktur já, sá minni nei.
Þetta er ekkert plat.
Hjól Bernhards Bechter, hvalavinar, er engin smásmíði, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Hún er tekin úr nýlegri ferð hans til Spreenhagen í Þýskalandi, en þangað hjólaði Bernhard með dverg til að mótmæla illri meðferð á alifuglum. Ekki er vitað hvort að dvergurinn er með í för að þessu sinni.
Tekið skal fram að ekkert er að marka þessa færslu.
Fyrr í kvöld skrifaði ég færslu, sem fól í sér gagnrýni á vafasöm vinnubrögð, sem við verðum því miður alltof oft vitni að í bandarískum stjórnmálum, þ.e. hvernig farið er í ófrægingarherferð gagnvart einstökum frambjóðendum, í þessu tilviki Hillary Clinton. Stuttu síðar varð ég var við að tengingin við fréttina, sem ég vann færsluna út frá, var horfin úr færslunni og ómögulegt fyrir mig að fá hana inn aftur. Ég prófaði bæði að skrifa nýja færslu (tengingin vildi eftir sem áður ekki birtast) og að tengja við aðra frétt (það gekk hinsvegar eins og í sögu). Ég er búinn að skrifa til vina minna hjá blog@mbl.is og óska eftir skýringum. Er ég fórnarlamb ritskoðunar eða tæknilegrar bilunar? Spennandi! Ég læt ykkur vita hvað kemur út úr þessu!  Hefur eitthvert ykkar lent í svipuðu?
Hér er annars fréttin.
Nýjustu upplýsingar: Það er komið í ljós að þetta var tæknileg bilun. Fréttin hefur nú meira að segja verið tengd sérstaklega fyrir mig í kerfinu og hafi mbl.is þökk fyrir. Ansans, það hefði verið miklu meira spennandi ef þetta hefði nú verið ritskoðun! Ég ætla að nota tækifærið og hrósa mbl.is fyrir góða notendaþjónustu. Ég er mikill áhugamaður um vefþróun og hef spurt þá um ýmsa hluti. Aldrei hefur það brugðist að ég hafi fengið skýr og góð svör. Þau ykkar, sem aðhyllast samsæriskenningar, getið hinsvegar velt því fyrir ykkur: ætli ég hafi skrifað þetta, eða var það kannski einhver hjá mbl.is?
Hillary (til vinstri) með frönskum klæðskiptingi.
Nú er að koma upp á yfirborðið að Hillary Rodham Clinton, væntanlegur forsetaframbjóðandi Demókrata í Bandaríkjunum, mun hafa sagt margsinnis ósatt á átta ára tímabili, eða nánar tiltekið á árunum 1951 til 1959, þegar Hillary var 4-12 ára gömul. Lygarnar munu spanna allt frá því að hafa sagst vera búin með matinn sinn til að vera búin að læra heima. Í ljósi mikilvægi þess að sá eða sú sem kemur til með að gegna valdamesta embætti jarðarinnar sé laus við allan breyskleika, þá hefur George W. Bush skipað nefnd, sem er ætlað það hlutverk að komast til botns í þessu máli. Meðal annars verður rætt við skólafélaga hennar úr leikskólanum, en leyniþjónustan hefur lýst yfir áhyggjum sínum af því að a.m.k. einn þeirra mun vera af sýrlenskum uppruna. Ekki er talið útilokað að hann hafi leikið sér í sama sandkassa.
Jóhanna Vala samsamaði sér vel, brosti fallega og tók sig vel út á sviðinu. Ég náði í lokin á þessu og sá ekki betur en að hún ætti sigurinn fyllilega skilið. Það væri hinsvegar eðlilegra að tala um sýningu frekar en keppni. Hér er verið að sýna eitt form fegurðar og ekkert út á það að setja. Fólk var hvorki neytt til að taka þátt né að horfa á þetta, svo ég best viti. Keppni felur hinsvegar í sér átök, að keppendur leggi hart að sér. Ég er ekki viss um að það að gæta að mataræðinu, liggja í ljósabekkjum og reyna að mismæla sig ekki sé nóg til að réttlæta að kalla þetta keppni. Þetta er hinsvegar ekkert verri skemmtun fyrir vikið. Til hamingju Jóhanna Vala. Þú ert sæt og nú hefurðu það skjalfest.
Ef þú ert vön eða vanur að fara í Melabúðina og kaupa kjúkling á föstudögum, myndirðu móðgast ef Friðrik verslunarstjóri segði við þig um leið og þú gengir inn: "Heyrðu, við erum tilboð á kjúklingi í dag!".
Líkt og að kauphegðun gefur vísbendingar um það, hverju neytendur eru spenntir fyrir, þá veita leitarorð dýrmætar upplýsingar um það hverju notendur hafa áhuga á. Viðskiptahugmyndin á bak við Google er að færa notendur sem næst þeim upplýsingum, sem þeir eru á höttunum eftir. Ég vil einmitt sjá auglýsingar um hugðarefni mín. Auglýsingar um dömubindi og augnskugga gera ekkert fyrir mig.
Það væri hinsvegar gott væri að geta að frábeðið sér vissar auglýsingar. Það er hvorki í hag auglýsandans né þess sem auglýsingin beinist að hún pirri hann eða hana. Ég efast ekki um að sá möguleiki á eftir að koma.
Ég mæli annars með kjúklingnum í Melabúðinni. Ber af!
Ef þú ert ekki þegar komin/n með Firefox - hér er hann, gjörðu svo vel. Firefox er ókeypis og frábær vafri, hvort sem þú notar Windows, MacOS X eða Linux.
Þau ykkar sem notið Firefox hafið væntanlega flest tileinkað ykkur að opna síður í flipa (ctrl+smella) frekar en í glugga. Þú lendir hinsvegar örugglega í því við og við að loka flipa, sem þú ætlaðir ekki að loka. Þá er frábært að vita af því að þessi lyklaborðssamsetning:
ctrl+shift+t
...kallar fram síðasta flipann sem þú lokaðir. Ótrúlega einfalt og gagnlegt! Prófaðu bara.
Macintosh notendur athugið: Notið Slaufuhnappinn í stað Ctrl.
Hvað í ósköpunum þýðir þetta skilti?!?
Hefurðu einhvern tíman velt því fyrir þér, hvað ræður röð niðurstaðna hjá Google? Svarið færðu hér:  PigeonRank™
Skoðaðu líka: Leitaðu á Google með hugarorku!
Google hefur þróað sérstaka leitartækni, sem byggir á því að Google les hugsanir þínar, þannig að þú þarft ekki að hafa fyrir því að skrifa þær. Þú getur prófað tæknina hér, að neðan. Prófaðu oftar en einu sinni, það eru margar niðurstöður, hver annarri skemmtilegri!
Leiðbeiningar:
Ef þú notar gleraugu, taktu þau þá af þér. Speglunin truflar niðurstöðuna.
Starðu á MentalPlex hringinn, hér til hliðar. ALLS EKKI HREYFA HAUSINN.
Sjáðu fyrir þér það sem þú ert að leita að.
Þegar þú ert kominn með skýra mynd í hugann, smelltu þá á hringinn.
Spurt og svarað and myndskýringar .