Ertu að fara út með vinunum?

BjórEyðublað fyrir karlmenn sem eru að fara út að skemmta sér

Nafn:  ___________________________________

Ég óska eftir leyfi frá æðsta yfirvaldi lífs míns fyrir neðangreint tímabil.

Dagsetning: _______
Farið út kl.: _______ Komið heim (í ALLRA síðasta lagi) kl.: ________

Að því gefnu að leyfi fáist, þá sver ég og sárt við legg að heimsækja aðeins þá staði sem tilgreindir eru hér að neðan á þeim tíma sem þar kemur fram. Ég samþykki að reyna hvorki við né daðra við aðrar konur. Ég mun ekki einu sinni tala við aðrar konur, nema þær sem ég hef skriflegt leyfi fyrir hér að neðan. Ég mun ekki slökkva á gemsanum eftir tvo bjóra né neyta meira magns af áfengi en kemur fram hér að neðan fyrr en ég hef hringt eftir leigubíl og fengið munnlegt leyfi fyrir aukadrykknum. Ég skil að jafnvel þótt leyfið fáist þá hefur þú fullan rétt á að vera fúl út í mig viku á eftir án nokkurrar sérstakrar ástæðu.

Áfengi sem leyfið nær til (einingar):
Bjór ___ Léttvín ___ Sterkt vín ___ Alls ___

Staðir sem leyfið nær til:
Staður: _______________  Frá kl.: ______ Til kl.: _______
Staður: _______________  Frá kl.: ______ Til kl.: _______
Staður: _______________  Frá kl.: ______ Til kl.: _______

Konur sem má eiga takmörkuð samskipti við: ________________

MIKILVÆGT ÁKVÆÐI UM NEKTARDANS: Auk þess sem á undan er komið þá lofa ég að halda mér í 20 metra fjarlægð frá fatafellum og/eða erótískum dönsurum. Brot á ákvæði þessu er gild ástæða fyrir sambandsslitum.

Undirskrift:

___________________________


Eyðublað fyrir konur sem eru að fara út að skemmta sér

Nafn: ________________________

Ég er að fara út.

Undirskrift:

___________________________


Góða skemmtun um helgina! Grin

Ekki einu sinni Danir skilja dönsku!

Hér er frábært atriði úr norskum grínþætti, þar sem gert er góðlátlegt grín að hinu óskiljanlega tungumáli - dönsku.


Kínversk enska

Kínverjar standa Japönum ekki langt að baki þegar kemur að því að skrifa skemmtilega ensku. Hér eru ágæt dæmi um það.

Ekki treysta morðingjum...
Stranglers
Það er þá í Kína eftir allt saman!
Fyrirheitna landið
Klósett - fyrir alvöru karlmennFyrir alvöru karla

Staður með skoðunStaður með skoðun
Hjálplegir, Kínverjarnir...Hjálplegir

Klósettin eru skammt undan, ekki kúka hérEkki kúka hér
Örbylgjuofn fyrir hundaHot dogFólk er varasamt
Varastu fólk

Taktu prófin með trukki*

Bókastafli

Enn er þetta vefur sem gefur og að þessu sinni fá námsmenn að njóta gjafmildinnar. Ég hef tekið saman 10 leiðir til að bæta námsárangur eða þá að ná prófum með sem minnstri fyrirhöfn. Njóttu vel!

  1. Brjóttu verkið niður. Námsefnið kann að virðast óyfirstíganlegt en með því að skipta því niður í nokkra hluta, þá er auðveldara að ná tökum á því.
  2. Forgangsraðaðu. Efnið er ekki allt jafn mikilvægt. Þegar tíminn er takmarkaður þarftu að kunna að forgangsraða. Þú getur t.d. skipt því í þrjá flokka: A. Efni sem þú verður að lesa og kunna. B. Efni sem þú getur farið hraðar í gegnum en þarft að vita um hvað það snýst - lestu inngang, niðurstöður, fyrirsagnir, upptalningar og skoðaðu myndir og töflur. Og síðan er það síðasti og að sumra mati skemmtilegasti flokkurinn, C. Efni sem þú getur sleppt! En til þess að sleppa efni þarftu að gera þér grein fyrir því hvað skiptir mestu máli.
  3. Skiptu efninu niður á þann tíma sem þú hefur. Ef þú hefur fimm daga, skiptu þá efninu (A og B) í fimm hluta. Ef þú hefur ráð á því, notaðu a.m.k. hluta af síðasta deginum til að fara hratt í gegnum aðalatriðin úr því efni sem þú hefur þegar farið yfir.
  4. Einangraðu þig. Taktu nokkra klukkutíma frá á hverjum degi þar sem þú slekkur á símanum, sjónvarpinu, iPoddinum og tekur routerinn úr sambandi! Það er ótrúlegt hvað þú getur komið miklu í verk þegar ekkert og enginn truflar þig. Fyrir þá sem geta ekki slökkt á símanum, settu hann þá a.m.k. á silent. Ekki svara nema að það sé neyðartilvik. Það er ekki neyðartilvik þegar vinir hringja.
  5. Leitaðu ráða. Með sama hætti og að það er frábært að loka sig af, þá er frábært að eiga góða að. Nýttu þér félagana ef eitthvað er að vefjast fyrir þér - utan þess tíma sem þú ert að einbeita þér að efninu!
  6. Verðlaunaðu þig. Þegar þú ert búin/n með það efni sem þú ætlaðir þér að taka - gerðu þá eitthvað skemmtilegt! Fáðu þér hreint loft. Horfðu á sjónvarpsþátt. Breyttu til.
  7. Sofðu. Ekki falla í þá freistingu að sleppa að sofa nóttina fyrir prófið, það kemur niður á dómgreind þinni og rökhugsun. Þú gerir fleiri villur þegar þú ert ósofin/n.
  8. Byrjaðu. Geymdu ekki allt fram á síðustu stundu.
  9. Safnaðu saman skyldum verkum. Þetta á bæði við um námið og annað. Ef þú þarft t.d að fletta einhverju upp á netinu, punktaðu það hjá þér - flettu því ekki upp strax - safnaðu atriðunum saman og afgreiddu þau hvert á fætur öðru þegar þú ert búin/n með afmarkaðan hluta þess sem þú ætlaðir þér að gera.
  10. Komdu reglulega inn á komment.blog.is. ...en ekki hanga hérna alltof lengi! Farðu nú að læra!
* Trukkur ekki innifalinn. Smile

Morðóðir Norðmenn?

Noregur

Þegar fylgst er með fréttum frá Norðurlöndum virðist tvennt standa upp úr. Óvenjumörg morð virðast vera framin í Noregi og nýbúar sýnast koma þar merkilega oft við sögu. Hér væri auðvelt að hrapa að ályktunum. Ekki er þó allt sem sýnist.

Í fyrsta lagi þá er morðtíðni í Noregi sú lægsta á Norðurlöndum (0,78 á hverja 100.000 íbúa) og er þá Ísland meðtalið (1,03 á hverja 100.000 íbúa hér).

Í öðru lagi verður að hafa í huga að ekki þykja öll morð jafn fréttnæm. Það vekur einfaldlega meiri athygli þegar nýbúi kemur við sögu. Þetta er svipað því þegar tekið er fram í landsmálafréttum að utanbæjarmaður hafi verið að verki.

Þannig að þú, lesandi góður, þarft ekki að stökkva strax til og kjósa Frjálslynda flokkinn, að minnsta kosti ekki á þessum forsendum.


mbl.is Norsk lögregla leitar manns sem talinn er hafa myrt konu og barn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gullkorn frá guðföður grínsins

grouchomarxs

Sem inngang í vikuna þá hef ég tekið mig til og snarað fyrir ykkur á okkar ylhýra nokkrum gullkornum frá Groucho Marx, manninum sem veitti grínurum á borð við Woody Allen innblástur.

  • Aldur er ekkert merkilegur. Allir geta orðið gamlir. Það eina sem þú þarft að gera er að lifa nógu lengi.
  • Skál fyrir eiginkonum okkar og kærustum... vonandi hittast þær aldrei.
  • Sendu 24 rósir upp á herbergi númer 424 og skrifaðu: 'Emilía, ég elska þig' á bakhlið reikningsins.
  • Ég gleymi aldrei andliti - en í þínu tilviki ætla ég að gera undantekningu.
  • Þeir sem segist sjá í gegnum konur eru að missa af miklu.
  • Ef þú vilt komast að því hvort að maður sé heiðarlegur, spurðu hann. Ef hann svarar játandi þá veistu að hann er óheiðarlegur.
  • Sjónvarp hefur mikið menntunargildi fyrir mig. Þegar það er kveikt á því, þá fer ég yfir í næsta herbergi og les bók.
  • Þetta eru mín prinsip! Ef þér líkar ekki við þau, þá á ég önnur.
  • Hún hefur útlitið frá föður sínum. Hann er lýtalæknir.
  • Fimm ára barn skilur þetta! Sækið fimm ára barn strax!
  • Hjónaband er helsta orsök skilnaða.
  • Ég gleymi ekki fyrstu kynlífsreynslu minni - ég geymi kvittunina.
  • Mér líður ekki vel - hringdu á næsta golfvöll eftir lækni.
  • Í Hollywood heldur brúðurinn vendinum en losar sig við brúðgumann.
  • Maður ræður ekki örlögum sínum. Konan manns gerir það.
  • Næst þegar ég sé þig, minntu mig á að tala ekki við þig.
  • Hverjum ætlarðu að trúa, mér eða þínum eigin augum?
  • Í gærkvöldi skaut ég fíl í náttfötunum mínum. Hvernig hann komst í náttfötin mín hef ég ekki hugmynd um.

Staða og horfur fram að kosningum

ad_117_1365

Sá ágæti maður, Ólafur Þ. Harðarson, sagði eitt sinn við mig á göngunum í Odda: "Þegar maður lærir stjórnmálafræði, fer manni smám saman að þykja vænt um alla flokka." Svei mér þá, ef það er ekki eitthvað að marka þetta.

  • Framsóknarflokkurinn á hrós skilið enda hafa flokksmenn unnið hart að því að undanförnu að bæta ímynd flokksins. Mál Jónínu Bjartmarz hlýtur hinsvegar - og ætti - að kalla fram óbragð í munni kjósenda.
  • Ég tek undir það sem Andrés Magnússon sagði fyrr í kvöld að ef kosningarnar koma til með að snúast um hæfni Geirs H. Haarde að leiða þjóðina, þá eru það góðar fréttir fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Stjórnarandstaðan er ekki öfundsverð að þurfa að glíma við Geir og Þorgerði Katrínu.
  • Frjálslyndi flokkurinn hagnast á því að kjósendur eru orðnir þreyttir á því að hlusta á gagnrýni á stefnu flokksins í málefnum nýbúa. Gagnrýnin kom í raun á besta tíma fyrir flokkinn. Hann á bara eftir að sækja í sig veðrið fram að kosningum. Gleymum því heldur ekki að í kjörklefanum þurfa menn ekki að svara fyrir fordóma sína, þetta er leynileg kosning.
  • Ómar Ragnarsson er því miður á góðri leið með að eyðileggja Íslandshreyfinguna. Ómar kemur fram í fjölmiðlum sem hugsjónarmaður án jarðtengingar. Engum er illa við Ómar, en kjósendur virðast ekki ná að sjá hann fyrir sér sem stjórnmálaleiðtoga.
  • Samfylkingin náði að tryggja sér meira fylgi en henni bar í raun með hræðsluáróðri við síðustu kosningar. Innanbúðarvandamál hafa síðan komið í veg fyrir að fastafylgi flokksins hafi fylgt því eftir. Ingibjörgu Sólrúnu verður ekki stætt á að sitja mikið lengur eftir þessar kosningar. Hennar tími er einfaldlega liðinn.
  • Það hefur verið magnað að fylgjast með uppgangi Vinstri grænna. Flokkurinn hefur nú fengið til baka það fylgi sem Samfylkingin stal af honum við síðustu kosningar og meira til. Vandinn er að flokkurinn mælist stærri en innviðirnir þola. Róttækni og breiðfylking fer einfaldlega ekki saman.
  • Baráttusamtökin hafa náð þeim árangri sem þau geta vonast eftir. Hinir flokkarnir hafa þegar ættleitt þann hluta málefnapakkans sem þeir treysta sér til að taka. Samtökin snúast nú aðeins um persónulegan metnað einstaklinga, sem enginn þekkir hvort sem er.

 


mbl.is Fylgi Samfylkingar og VG jafnmikið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fimm leiðir til að gera betri kaup

bonus_logo

Þetta er vefur sem gefur. Innblásinn af Jóhannesi Gunnarssyni frekar en Jóhannesi Jónssyni, hef ég tekið saman nokkur ráð sem er gott að hafa í huga, næst þegar farið er að versla. 

  1. Láttu ekki körfuna stjórna þér
    Þótt þig vanti kannski bara einn hlut þá kallar karfan á fleiri. Ílát eru gerð til að fylla. Það er ekki að ástæðulausu að verslanir fjárfesta í körfum og kerrum fyrir viðskiptavini sína.
  2. Ekki versla svangur eða svöng
    Svengd hefur áhrif á dómgreindina. Þú ert líklegri til að gera góð kaup á fullum maga.
  3. Námundaðu upp
    Kr. 3.990 eru ekki þrjú þúsund og eitthvað, heldur tæplega fjögur þúsund. Keyptu á réttum forsendum.
  4. Ásett verð er hámarksverð
    Þetta á sérstaklega við stærri hluti, svo sem fasteignir og bifreiðar. Það er þitt hlutverk að finna það verð sem seljandinn er tilbúinn til að sætta sig við. Allt umfram það er á þinn kostnað.
  5. Gerðu innkaupalista
    Það er ágæt leið til að brynja sig gagnvart lymskulegri sölutækni seljenda.

Kristni fyrir leikmenn

Christ

Kristni er sú trú að 2000 ára gamall uppvakningur, og fyrrverandi trésmiður, sem er jafnframt faðir sinn, veiti þeim eilíft líf, sem með táknrænum hætti, borði af líkama hans og sverji honum hollustu, til að hann aflétti bölvun, sem er komin til vegna þess að talandi snákur sannfærði konu, sem varð til úr rifbeini, um að borða ávöxt.

Gefnar hafa verið út bækur, kvikmyndir - og meira að segja söngleikur - um ævi þessa tvímælalaust frægasta trésmiðs heims. Þeir sem eldri eru muna síðan eflaust eftir bókaflokknum, Biblíunni, sem greinir frá ævintýrum kappans og naut töluverðra vinsælda á sínum tíma.


Til hamingju Unitedmenn!

Þrátt fyrir að vera einarður stuðningsmaður Liverpool, þá ber ég virðingu fyrir góðum fótbolta, sama hvaðan hann kemur. United spilar skemmtilegan bolta og baráttugleði liðsins er aðdáunarverð. Mikilvægir leikir ráðast hinsvegar furðu oft af því hvort að Rooney er í stuði, og það var hann svo sannarlega í kvöld! Seinni leikur liðanna á San Siro er leikur sem maður má helst ekki missa af.


mbl.is Rooney tryggði Manchester United sigur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband