Ertu að fara út með vinunum?

BjórEyðublað fyrir karlmenn sem eru að fara út að skemmta sér

Nafn:  ___________________________________

Ég óska eftir leyfi frá æðsta yfirvaldi lífs míns fyrir neðangreint tímabil.

Dagsetning: _______
Farið út kl.: _______ Komið heim (í ALLRA síðasta lagi) kl.: ________

Að því gefnu að leyfi fáist, þá sver ég og sárt við legg að heimsækja aðeins þá staði sem tilgreindir eru hér að neðan á þeim tíma sem þar kemur fram. Ég samþykki að reyna hvorki við né daðra við aðrar konur. Ég mun ekki einu sinni tala við aðrar konur, nema þær sem ég hef skriflegt leyfi fyrir hér að neðan. Ég mun ekki slökkva á gemsanum eftir tvo bjóra né neyta meira magns af áfengi en kemur fram hér að neðan fyrr en ég hef hringt eftir leigubíl og fengið munnlegt leyfi fyrir aukadrykknum. Ég skil að jafnvel þótt leyfið fáist þá hefur þú fullan rétt á að vera fúl út í mig viku á eftir án nokkurrar sérstakrar ástæðu.

Áfengi sem leyfið nær til (einingar):
Bjór ___ Léttvín ___ Sterkt vín ___ Alls ___

Staðir sem leyfið nær til:
Staður: _______________  Frá kl.: ______ Til kl.: _______
Staður: _______________  Frá kl.: ______ Til kl.: _______
Staður: _______________  Frá kl.: ______ Til kl.: _______

Konur sem má eiga takmörkuð samskipti við: ________________

MIKILVÆGT ÁKVÆÐI UM NEKTARDANS: Auk þess sem á undan er komið þá lofa ég að halda mér í 20 metra fjarlægð frá fatafellum og/eða erótískum dönsurum. Brot á ákvæði þessu er gild ástæða fyrir sambandsslitum.

Undirskrift:

___________________________


Eyðublað fyrir konur sem eru að fara út að skemmta sér

Nafn: ________________________

Ég er að fara út.

Undirskrift:

___________________________


Góða skemmtun um helgina! Grin

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég kalla þig ekki komment heldur karlrembusvín með hallærislegan húmor.  Kommon eru svona brandarar ekki löngu orðnir tímaskekkja? Hehe.

Jenný Anna Baldursdóttir, 5.5.2007 kl. 12:16

2 Smámynd: Kallaðu mig Komment

Hehe, jú vafalaust. Lofa að vera skemmtilegri næst. Takk fyrir kommentið.

Kallaðu mig Komment, 5.5.2007 kl. 12:21

3 Smámynd: Bjarki Tryggvason

Þessi færsla var frábær. Ef þú ert karlrembusvín hvað er þá Ellý Ármanns? Persónulega finnst mér þú sá allra fyndnasti hérna á blog.is:) Eflaust er það vegna þess að ég er karlmaður! Ég er nú samt algjörlega á móti að giftir menn sæki nektardansstaði:) Þinn blogg vinur, Bjarki

Bjarki Tryggvason, 5.5.2007 kl. 12:46

4 Smámynd: Kallaðu mig Komment

Þegar svona samningur er kominn á borðið þá er ljóst að brotalamir eru komnar í sambandið, sama hvor aðilinn á í hlut. Ég mæli með því að kynnast góðri konu. Eftir það langar mann ekkert út og málið leyst. Takk fyrir hólið Bjarki.

Kallaðu mig Komment, 5.5.2007 kl. 16:32

5 identicon

EF ég væri ekki einhleyp og EF ég væri taugaveikluð kvenremba, myndi ég pottþétt nota þessi eyðublöð!

Snilld! 

Lilja Haralds (IP-tala skráð) 7.5.2007 kl. 02:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband